About Us / Um okkur
🇬🇧 English
We are a small Icelandic family who built this home from the ground up—together, with love, care, and a shared vision. What began as a dream slowly turned into a reality: a tranquil space where simplicity meets comfort, and where the natural beauty of the Icelandic countryside becomes part of everyday life.
Mói Luxury House is more than a place to stay—it is a reflection of our journey as a family. Every detail, from the architecture to the garden paths, has been thoughtfully planned and personally built. We’ve poured our hearts into creating an environment where guests can truly relax, breathe deeply, and feel at home.
Though the house is complete, our work continues. We are still developing the land around it, planting trees, improving the outdoor space, and finding new ways to enhance the experience for every guest. Each season brings something new, and we embrace the rhythm of change as part of the charm.
From time to time, we may also offer a homemade breakfast, lovingly prepared and featuring local ingredients.
This is available by request and for an additional fee. Please don’t hesitate to contact us—we’ll do our best to accommodate.
🍃 The charm of the seasons at Mói
Every season brings its own unique atmosphere to Mói.
In winter, there is no light pollution, making this the perfect place to watch the northern lights dance across the sky in total peace and darkness.
Spring awakens with life, as our home is located in a bird protection area. It’s a magical time when you can observe birds returning and nesting all around the property.
Summer offers bright Icelandic nights, where daylight lingers late into the evening—or even all night—creating an unforgettable experience.
In autumn, the light softens. Dusk arrives earlier, and there's nothing like curling up indoors, lighting a few candles, and enjoying the deep stillness that surrounds you.
🇮🇸 Íslenska
Við erum lítil íslensk fjölskylda sem byggði þetta heimili frá grunni – saman, með kærleika, natni og sameiginlegri sýn. Það sem byrjaði sem einföld hugmynd hefur með tímanum þróast í notalegt athvarf þar sem náttúra og nútímaleg þægindi mætast.
Mói Luxury House er meira en bara gististaður – þetta er afrakstur margra ára vinnu, samheldni og sköpunar. Hvert smáatriði hefur verið vandlega úthugsað og unnið af eigin hendi. Við höfum lagt okkur fram um að skapa rými þar sem gestir finna ró, geta slakað á og upplifað tengingu við umhverfið.
Þótt húsið sjálft sé fullbúið höldum við áfram að hlúa að staðnum. Við erum sífellt að bæta aðstöðuna, gróðursetja tré og skapa ný tækifæri fyrir gesti til að njóta umhverfisins. Hver árstíð færir með sér nýja stemningu og við fögnum þeirri náttúrulegu hringrás sem mótar upplifunina.
Stundum bjóðum við upp á heimagerðan morgunmat með áherslu á einfaldleika og staðbundin hráefni.
Þjónustan er í boði gegn gjaldi og eftir samkomulagi. Hafðu samband ef þú hefur áhuga – við gerum okkar besta til að verða við óskum.
🍃 Árstíðirnar í Móa
Hver árstíð hefur sinn sjarma og gefur dvölinni í Móa sérstakt yfirbragð.
Vetur: Í kringum Móa er engin ljósmengun – staðurinn er fullkominn til að fylgjast með norðurljósunum dansa yfir stjörnubjartan himin í kyrrð og friði.
Vorið: Við erum staðsett á fuglafriðunarsvæði og á vorin má upplifa náttúruna vakna til lífsins. Fuglar snúa aftur og koma sér upp hreiðrum í kringum húsið – stórkostlegt fyrir náttúruunnendur.
Sumar: Íslenskar sumarnætur eru einstakar – bjartar, rómantískar og nánast endalausar. Dagsbirtan dvelur langt fram á kvöld og skapar töfrandi stemningu.
Haust: Þegar rökkrið færist yfir verður birtan mýkri og stemmingin kósý. Þá er dásamlegt að kveikja á kertum, kúra innandyra og njóta kyrrðarinnar sem umlykur húsið.